Hlýtt veður, 12-13°C (bíllinn sýndi 16°C kl. 18). Smávægileg hafgola, sól mestan part dagsins. Úrkoma síðustu viku 35 mm.
Akurinn er ennþá mjög blautur, en ég lét mig hafa það að setja niður það sem eftir var af hnúðkálinu, um það bil 12 bakkar. Setti mjög þétt og henti öllum plöntum sem mér fannst ekki vera vænlegar. Það hnúðkál sem þegar er komið út á akurinn hefur strax tekið við sér. Þessar ljótu skemmdir sem við sáum á rótunum segir Sædís vera af völdum svepps, ég þarf að afla mér nánari upplýsinga um það.
Við fórum til Reykjavíkur og komum heim með fururnar sem voru á Mógilsá og nokkrar fleiri plöntur. Grenið sem er þar hefur heldur betur tekið við sér í sumar, en ég ætla að láta það vera inni eitt ár í viðbót.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
June
(19)
- Mánudagur 30. júní 2014
- Eik - Stilkeik - Quercus robur
- Sunnudagur 29. júní 2014
- Mánudagur 23. júní 2014
- Sunnudagur 22. júní 2014
- Laugardagur 21. júní 2014
- Fimmtudagur 19. júní 2014
- Miðvikudagur 18. júní 2014
- Þriðjudagur 17. júní 2014
- Mánudagur 16. júní
- Fimmtudagur 12. júní 2014
- Miðvikudagur 11. júní 2014
- Þriðjudagur 10. júní 2014
- Mánudagur 9. júní 2014
- Sunnudagur 8. júní 2014 - Hvítasunnudagur
- Fimmtudagur 6. júní 2014
- Þriðjudagur 3. júní 2014
- Mánudagur 2. júní 2014
- Sunnudagur 1. júní 2014
-
▼
June
(19)
No comments:
Post a Comment