Wednesday, June 11, 2014

Miðvikudagur 11. júní 2014

Fínt veður, hlýtt og þurrt, 16°C og NA-gola, allt að 10 m/sek.
 Norðurskjólið var sett upp að mestu leyti, enn er samt eftir að lagfæra þá hlið sem snýr í NV. Þessi girðing fór öll frekar illa þegar kerran og tómt ker fóru þarna hjá í flugferð sinni í vetur.
 Byrjaði að setja niður hnúðkál. Tæmdi 1/2 karm og lég það passa í eitt beð, nr. 7. Það er svolítið laust pláss í vesturendanum, en þar er alltaf mjög mikið illgresi, reyni að komast fyrir það í sumar. Áður en gróðusett var var borið á Bór og líka "kryddblanda" úr kaffikorgi, þörungamjöli og hafkalki, sem fór í öll beðin nema kartöflubeðin. Kaffikorgur og þörungamjöl í öll beðin.  Hnúðkálið er ekki nógu fallegt og það eru nokkur sem eru rótarlaus í bökkunum. Vonandi hressast plönturnar við að komast í betri jarðveg.
 Við tókum upp 19 kg af rabbarbara, fer með hann í Frú Laugu á morgun.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive