kl. 8:00 - logn, sólskin 10°C. Spáð er hitabylgju þessa hvítasunnuhelgi.
Í gær náðist að raka tvö beð á akrinum og sá þar gulrótum. Það er í seinna lagi, en gæti þó gefið einhverja uppskeru.
Fór í Hafnargerði um 8.30, þá var þar 9°C en hitinn var kominn í 18°C um 11 og fór yfir 20°C síðdegis. Í dag var mikið um að vera. Allir karmar opnaðir fyrir hádegi. Fór svo í Skallagrímsgarð til að ná í blæösp í samráði við Steinunni. Skúli (sem annast viðhald í Borgarnesi) hjálpaði mér að grafa upp rætur. Við Halldór settum nokkra græðlinga í mold í keri, tveir þeir stærstu vaxa á sömu rót og þeir fóru beint út, á holtið í heimagarðinum. Halldór setti stuðning við það, en rótarkerfið er mjög veigalítið.
Um miðjan daginn var útskrift í MB, en síðdegis fórum við aftur af stað. Nú náði ég að raka 3 beð og Halldór sáði hnúðkáli í 2 þeirra og við settum rauðar kartöflur í eitt. Við héldum áfram til 7.30, fórum þá heim að borða og fórum aftur um kl. 22 til að loka körmunum, þá var ennþá 16°C og svolítil hafgola.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
June
(19)
- Mánudagur 30. júní 2014
- Eik - Stilkeik - Quercus robur
- Sunnudagur 29. júní 2014
- Mánudagur 23. júní 2014
- Sunnudagur 22. júní 2014
- Laugardagur 21. júní 2014
- Fimmtudagur 19. júní 2014
- Miðvikudagur 18. júní 2014
- Þriðjudagur 17. júní 2014
- Mánudagur 16. júní
- Fimmtudagur 12. júní 2014
- Miðvikudagur 11. júní 2014
- Þriðjudagur 10. júní 2014
- Mánudagur 9. júní 2014
- Sunnudagur 8. júní 2014 - Hvítasunnudagur
- Fimmtudagur 6. júní 2014
- Þriðjudagur 3. júní 2014
- Mánudagur 2. júní 2014
- Sunnudagur 1. júní 2014
-
▼
June
(19)
No comments:
Post a Comment