Tuesday, June 3, 2014

Þriðjudagur 3. júní 2014

Hlýtt og þurrt í dag, en N13, 13°C. Fínt veður á vinnusvæðinu á bak við skjólveggi. Akurinn er enn of blautur til að hægt sé að raka yfir beðin og ganga um til að sá eða setja niður kartöflur. Við vonum að þetta náist í þessari viku.
 Í dag náðist sá áfangi að setja niður allar kartöflurnar sem eiga að fara í ker. Við fengum góða gesti, 4 konur úr gönguhóp Grunnskólans komu gangandi frá Hafnarskógi, þær gengu með mér um svæðið og þáðu veitingar

No comments:

Post a Comment

Blog Archive