Tuesday, June 10, 2014

Þriðjudagur 10. júní 2014

Fínt veður, hægur vindur og sólskin fram eftir degi, en ein hressileg skúr síðdegis. 16°C.
Í dag var klárað að raka beðin í efri hluta akursins og borið á bór í öll beðin nema kartöflubeðin. Til stóð að byrja að setja niður hnúðkál, en þegar rigningarskúrin kom var ákveðið að fresta því til morguns. Í staðinn skiptum við út sitkaelri við veginn, 2 plöntur voru mjög lélegar og 3 voru settar í staðinn. Hinar voru gróðursettar uppi á holtinu, ekki langt frá sólberjum sem þar voru gróðursett fyrstu árin. Við undirbjuggum líka gróðursetningu á 3 rósum í lítinn lund vestan við gáminn, þar eru fyrir reynitré og ein falleg fura (og ein léleg), ásamt pínulitlum geislasópi. Við ákváðum að bíða í 2-3 daga og safna svolitlu af bananahýði, en það á að gera kraftaverk fyrir rósir, ég er ekki frá því að eitthvað sé til í því.
  Það lítur út fyrir að flestar blæaspirnar ætli að hafa flutningana af, við gefum þeim allavega tækifæri. Á heimleiðinni náði ég í litlar valmúaplöntur sem vaxa villtar hér í kring, eina hvíta og eina appelsínugula. Síðsumars í fyrra náðum við Ingibjörg í fræ á sama stað. Það spíraði vel, en ennþá hafa aðeins gular blómstrað.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive