Heldur kaldara en verið hefur undanfarið, 10°C og breytileg átt, 5-6 m. Í gær og í nótt rigndi einhver ósköp, úrkomumælirinn næstum fullur, en það á ekki að losa hann fyrr en á morgun.
Fór í dag og blandaði mold í ker fyrir aspasinn. Setti svolítið af gamalli pottamold, líka skít og nýja mold blandaða sandi. Ég hélt lengi vel að það væru aðeins 3 aspasplöntur á lífi, en þær reyndust vera 7. Tók eina og flutti, hún er með stóra og fína rót og virðist vera allt í lagi með hana. Aspasinn var fyrst gróðursettur 2010, síðsumars. Hann hefur komið upp á hverju ári, en alltaf verið mjór og ekki spennandi til að borða. Í vor hefur legið vatn yfir karminum í langan tíma, og líka í fyrrasumar svo nú á að prófa nýja staðsetningu.
Gróðursetti líka ein 15 stór kornblóm (sumarblóm) frá Sædísi. Setti þau 2-3 saman í opna svæðið sunnan við bílastæðið.
Þessar myndir setti ég á Facebook fyrir nokkrum dögum. Sú efri er tekin í júní 2009 þegar við vorum að enda við að gróðursetja, og sú neðri núna í júní 2014. Það rétt grillir í hænsnahúsið á milli trjánna. Ég fékk mikil viðbrögð við þessum myndum og ég er reyndar frekar ánægð með þennan árangur.
Saturday, June 21, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2014
(84)
-
▼
June
(19)
- Mánudagur 30. júní 2014
- Eik - Stilkeik - Quercus robur
- Sunnudagur 29. júní 2014
- Mánudagur 23. júní 2014
- Sunnudagur 22. júní 2014
- Laugardagur 21. júní 2014
- Fimmtudagur 19. júní 2014
- Miðvikudagur 18. júní 2014
- Þriðjudagur 17. júní 2014
- Mánudagur 16. júní
- Fimmtudagur 12. júní 2014
- Miðvikudagur 11. júní 2014
- Þriðjudagur 10. júní 2014
- Mánudagur 9. júní 2014
- Sunnudagur 8. júní 2014 - Hvítasunnudagur
- Fimmtudagur 6. júní 2014
- Þriðjudagur 3. júní 2014
- Mánudagur 2. júní 2014
- Sunnudagur 1. júní 2014
-
▼
June
(19)
No comments:
Post a Comment